10.12.2010

Geisladiskur með öllum 14 lögunum kominn út

Áhugasamir geta pantað diskinn með því að senda póst á netfangið magnus@auglysing.is
Vönduð bók með öllum textum og myndum frá keppniskvöldinu fylgir geisladisknum

05.06.2010

„Fugl fyrir vestan“ sigraði

Úrslitakvöld Sönglagakeppni Vestfjarða var haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gærkvöldi - föstudag 4. júní. Kvöldið tókst frábærlega og eru aðstandendur keppninnar í sjöunda himni yfir hvað framkvæmdin tókst vel.

Sigurlag kvöldsins var „Fugl fyrir Vestan“ eftir Helga Rafn Ingvarsson, en hann flutti lagið sjálfur. Í öðru sæti var „Alltaf, alltaf“ eftir Ingva Þór Kormáksson í flutningi Böðvars Reynissonar. Í þriðja sæti var svo lagið „Vestfirðir“ eftir Ægi Örn Ingvason, Gunnar Vigfús Guðmundsson og Benjamín Hrafn Böðvarsson við texta Ólafs Sv. Jóhannessonar sem jafnframt flutti lagið.

Áheyrendur völdu besta lag og besta flytjanda að sínu mati og var lag Helga Rafns „Fugl fyrir vestan“ einnig valið sem besta lagið hjá áheyrendum, en Heiða Ólafs var valin besti flytjandinn, en hún flutti lag Trausta Bjarnasonar, „Heima“.

Helgi Rafn hlaut í verðlaun: 10 stúdíótíma í Tankinum hljóðveri á Flateyri, stafrænt upptökutæki frá Hljóðfæraversluninni Rín, Flugfar fyrir tvo frá Flugfélagi Íslands, gistingu í tvær nætur fyrir tvo á Hótel Ísafirði, kvöldverð fyrir 2 í tvo daga frá veitingastaðnum Við Pollinn á Ísafirði og ferð fyrir tvo í Vigur frá Vesturferðum.

Aðstandendur keppninnar þakka öllum sem komu að framkvæmd keppniskvöldins fyrir frábæra frammistöðu. Án ykkar og allra hinna frábæru laga sem send voru í keppnina, hefði þetta ekki verið hægt. Jafnframt þökkum við öllum styrktaraðilum fyrir stuðninginn og fá Hamraborg á Ísafirði og Blómaval sérstakar þakkir fyrir að bregðast vel við með stuttum fyrirvara.
Þar til næst... bestu kveðjur,
Magnús Hávarðarson
Hönnun: Styx Iceland